Ronja Ræningjadóttir
   
laugardagur, september 27, 2008
Jáh! Sko stelpuna, þetta gat hún - munað aðgangsorðið sitt eftir allan þennan tíma!
Ekki það að ég hafi neitt að segja af viti. Bara allt í gúddí sko.
Var á ADHD ráðstefnu í gær og fyrradag og ég var svo þreytt eftir að einbeita mér svona lengi að ég sofnaði þegar ég kom heim hehehe. Ágæt ráðstefna annars, gaman að hitta fullt af fólki og svona.
Er núna á leiðinni út á vídjóleigu með gaurnum að taka einhverja góða mynd (og kaupa nammi!). Aldeilis skemmtileg, innihaldsrík og lifandi bloggfærsla svona að ári liðnu - múhahahahahahahah
Ronja litla reit um 21:34  
föstudagur, september 07, 2007
Ronja litla reit um 01:18  
fimmtudagur, september 06, 2007
athyglisbrestur
frathyglisfrestur
plathyglisprestur
gathyglisgestur
sathyglismestur
mathyglissestur
illfyglishestur!
Ronja litla reit um 01:18  
sunnudagur, september 02, 2007
Jeminn eini hvað ég eeelska lagið Chicago með Microfilm! Újeeee!
Ronja litla reit um 02:39  
sunnudagur, ágúst 19, 2007
Jei ég fann loksins franska rapplagið sem ég er búin að leita að undanfarin ár!

Danmörk var snilldin ein, takk þið öll fyrir frábærlega skemmtilega samveru :) Lítið annað í fréttum, helst að eftirsumarfrísþunglyndið vegi þungt akkúrat núna - vildi að það væri hægt að snúa þessu við, vinna í einn mánuð á ári og vera í fríi í ellefu búhú... verð góð annað kvöld samt þannig að engar áhyggjur, ég held þetta út.
Ronja litla reit um 17:11  
mánudagur, júlí 09, 2007
Ronja litla reit um 15:21  
sunnudagur, júlí 08, 2007
Sunnudagsmeðmælin:
ískalt vatn
koffíngos
súkkulaði
hroki og hleypidómar
stóri djúúúsí sófinn minn

hlustið á mig mala... purrrrrrrrrrrrr
Ronja litla reit um 18:20  
þriðjudagur, júní 12, 2007
ohhh mig langar á tónleika með þessari hljómsveit.... það væri geggjað...




það verður samt líka geggjað að fara á AIR í næstu viku - vííí hlakka til þess!
Ronja litla reit um 23:03  

Ég hlakka svo til að fara í sumarfrí, sumar-sumar-sumarfrííííííí!! Þá ætla ég sko að vera þvílíkt dugleg að klára að sansa íbúðina mína, fara út að hjóla, liggja í grasinu og lesa bækur og blunda í sólinni, og almennt hafa það hriiiikalega huggulegt! víííí
Ronja litla reit um 19:48  
fimmtudagur, júní 07, 2007
OKí loksins kominn tími á smá sætustrákablogg! Gúddígúddí!

Ronja litla reit um 23:57  
miðvikudagur, maí 23, 2007
Ó svo lýsandi :D Þetta hávísindalega próf lýsir mér ágætlega, nema.. mér fannst algebran skemmtilegri en rúmfræðin (léleg rýmdarhugsun!) og ég fíla ævisögur!


Ronja, you are Right-brained

Most right-brained people like you are flexible in many realms of their lives. Whether picking up on the nuances of musical concerto, appreciating the subtle details in a work of art, or seeing the world from a different perspective, right-brained people are creative, imaginative, and attuned to their surroundings.

People probably see your thinking process as boundless, and that might translate to your physical surroundings as well. Some people think of you as messier than others. It's not that you're disorganized, it's just that you might use different systems to organize (by theme, by subject, by color). Straight alphabetization and rigidly ordered folders are not typical of right-brained behavior.

You are also more intuitive than many. When it comes to reading literature, you probably prefer creative writing or fiction over nonfiction. And when it comes to doing math, you might find you enjoy geometry more than other forms like algebra.

Ronja litla reit um 21:27  
miðvikudagur, maí 16, 2007
Ég fíla þetta lag í tætlur... þarf að leita þessa hljómsveit uppi á netinu, Les Fatals Picards




Svo fíla ég America's Next Top Model endalaust vel, tilfinningaskalinn upp og niður, ást og hatur, öfund, reiði, gleði, Nigel, fallegt fólk, love it! Bandaríska útgáfan er líka miklu skemmtilegri en hinar sem ég hef séð (UK, Skandinavía, Ástralía) - þær eru einhvernveginn... veit ekki... vitlausari?
Ronja litla reit um 21:44  
þriðjudagur, maí 15, 2007
*snörl*

jebb lasin í sautjánda skipti á árinu (eða mér líður þannig) - bloggið nýtur góðs af því svona fyrst ég er ekki í stuði til að lesa eða glápa á sjónvarp. Litla herbergið í litlu íbúðinni minni naut líka góðs af.. búin að taka að miklu leyti til í því, en reyndar ekki öllu urg... meirað segja búin að tölfræðast aðeins í dag og borga skattinn.. alveg týpískt að þá fer "maðurinn með hattinn" að hljóma í hausnum á mér, kannski best að koma þessari háfleygu vísu að:

maðurinn með hattinn
stendur upp við staur
borgar ekki skattinn
því hann á ekki aur
hausinn oní maga
og maginn oní skó
reima svo fyrir
og hend'onum út í sjó!

þetta var sko eitt af uppáhaldslögunum mínum þegar ég var sex ára, þetta og Sísí fríkar út. Byrjaði snemma með þróaðan smekk hehehe. Þess má kannski geta líka að þegar ég var sex ára var ég skotin í þremur strákum í einu, veit ekki hvort það er merki um einhverja þróun samt... kannski bara pjúra athyglisbrestur - eins og blogg dagsins í dag!
Ronja litla reit um 17:46  
miðvikudagur, maí 02, 2007
... Mér datt eitthvað sniðugt í hug til að skrifa en ég náði að gleyma því á leiðinni inn á síðuna ... *fliss og roðn*

Jamm, flutt! Og hæstánægð með það bara! Held að "heimafílingurinn" hafi komið algjörlega núna í kvöld, sitjandi við borðstofuborðið, skrifandi skýrslu með Jay Leno í bakgrunninum... gerist varla klassískara ;)

Komin á nýjan bíl, alveg óvart, og hæstánægð með það líka!

Jii.. horfði á 20. þáttinn af Heroes í gærkvöldi áður en ég fór að sofa, ómægoood...

Ekki búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa þann 12. ... hvorki í alþingiskosningunum né júró ;)


... svo mörg voru þau orð
Ronja litla reit um 23:55  
sunnudagur, apríl 08, 2007



GLEÐILEGA PÁSKA rófurnar mínar!!
Ronja litla reit um 14:32  
föstudagur, apríl 06, 2007
Jei, frí eru best í heimi. Ég er búin að sofa (og svo sofa dálítið meir), taka til og pakka *hóst* eða svona... byrjuð að pakka allavega! Áðurgreint plús heimsóknir og át er það sem er helst planað um páskana... nææææs. Svo er stefnan bara sett á að flytja fyrir 1. maí múhahaha!


Ronja litla reit um 22:10  
þriðjudagur, apríl 03, 2007
þreyyyyyyyyyyyyytttttttttttttzzzzzzzzzzzzzz

álíka innihaldsríkt blogg og mér finnst hausinn á mér vera eftir kleppsvinnu undanfarins mánuðar

allt vit farið niður á blað og bara loftbólur eftir í hausnum á mér

væri alveg til í að geta eytt eins og næstu vikum í loftbólublizzi

það væri næs

*geysp*



Which Deadly Sin Is Yours?

Which Deadly Sin Are You

Sloth

Slow the world down a little and kick back. Why do today what you can put off until tomorrow.

Find out your Deadly Sin at Quizopolis.com
Ronja litla reit um 01:12  
föstudagur, mars 23, 2007
Rosalega góð aðferð sem hægt er að vinna á einum mánuði til að láta eina verktakaskattaskýrslu (tekur soldið lengri tíma en þessar ísípísívenjulegu) virka mjög lítið mál:


1. hafa extra mikið að gera í aðalvinnunni

2. hafa extra extra mikið að gera í aukavinnunni - sérstaklega í heimavinnuhlutanum

3. fá afhenta íbúð og þykjast sinna málun og öðru slíku

4. pakka búslóðinni að hluta

5. taka að sér hátt í tveggja tíma fyrirlestur- sem þarf að búa til nánast alveg frá grunni

6. hafa tímamörkin 25. mars því svo er ferðinni heitið erlendis á ráðstefnu

7. mæta á sem allra flesta mannfagnaði, meðal annars tvær árshátíðir og eitt stórafmæli

8. takmarka svefninn töluvert til að koma þessu öllu í verk

9. verða tvisvar sinnum lasin á þremur vikum - sem svo aftur eykur álagið af lið 1 - 6

NIÐURSTAÐAN:
í lok mánaðarins þegar lið 1 - 9 er lokið er ein skitin aumingjaleg verktakaskattaskýrsla eftir, svo lítið mál að það tekur því varla að gera hana. Best að fara á djammið bara!
Ronja litla reit um 18:04  
fimmtudagur, mars 22, 2007
ahhhh hvað það er gaman að fara á quizilla núna og gera eitthvað svona kjánalegt, ohhh ég er svo fegin að það er komið fimmtudagskvöld!
Ronja litla reit um 23:54  

Krúttipútt!

Ronja litla reit um 23:37  
Ég

Nafn: Ronja litla
Heima: Skóginum, Iceland
Um mig: Jarðbundinn skýjaglópur
sjá prófílinn minn
Fólk
Tilkynningar

Styttist í sumarfrí!!! Whoooppa!

Geymslan
Knúið af

Free Blogger Templates

BLOGGER