Ronja Ræningjadóttir
   
föstudagur, desember 22, 2006
Bjartsýnisverðlaun ársins 2006


- hljóta að fara til þeirra sem fannst það góð hugmynd að skella einu jólatré við varnargarðinn hjá JL húsinu!
Ronja litla reit um 15:51  
föstudagur, desember 15, 2006
Stumble! er tær snilld! Án þess hefði ég aldrei fundið þessa síðu til dæmis :D Múhahaha
Ronja litla reit um 00:12  
laugardagur, nóvember 18, 2006
Ammæli

Sykurmolarnir og ammæli í gær, ammæli og örugglega sykurmolar á morgun líka ;0)
Ronja litla reit um 20:52  
þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Frestunaráráttan að drepa mig, búin að fresta svooo mörgum færslum hingað inn síðustu vikur af því að það er of mikil fyrirhöfn að skrá mig inn. Núna meika ég alls ekki að slá inn lista þannig að bloggið nær því, í þetta sinn, að vera forðunarhegðun tíhíhí

Miklir flutningar framundan næstu mánuði, bæði er vinnan að flytja og svo ég. Ótrúlegt en satt þá gat ég valið mér íbúð, keypt og núna standa málin þannig að ég bíð bara eftir afhendingu - á næsta ári :D Spurning hvað ég get frestað tiltekt í fataskápnum og skjalaskápum mikið lengur, örugglega slatta samt...

æj ég veit ekki hvað ég á að segja meira, nenni ekki að tala um heimsmálin, menningu eða slíkt, best að setja bara mynd af einum af mínum uppáhaldsleikurum - jömmí - verst að hann er kvæntur því annars hefði ég farið og leitað hann uppi! Núna!
Ronja litla reit um 23:44  
mánudagur, október 30, 2006
Afleiðing af One night stand átaki Icelandair?? Mar spyr sig..
Ronja litla reit um 11:27  
þriðjudagur, október 03, 2006
...

ég ætlaði að skrifa eitthvað en mér dettur ekkert í hug

...

hmm

...

jamm

...

jæja

...

kannski smá öppdeit fyrir þá sem ég tala sjaldan við (af því að þið eruð ekki á msn! og ef einhverjir eru þarna sem eru ekki á msninu hjá mér og ég tala sjaldan/aldrei við þá megið þið kvitta!! :D). Ég er ekki búin að kaupa íbúð. Ég er enn á lausu. Ég er hress og kát. Ég er enn að vinna á sömu stöðum og venjulega. Ég hljóma eins og auglýsing á einkamálum. Ég er lítil, krútt, matargat, löt, skapstygg á morgnana en samt ljúf sem lamb. Ég er .............




















...farin í háttinn!
Ronja litla reit um 22:16  
þriðjudagur, september 12, 2006


Sniðug































Þessi lýsir húsnæðispælingunum mínum mjög vel ;)




Annað ekki títt. Góðar stundir.
Ronja litla reit um 22:50  
fimmtudagur, ágúst 31, 2006
Múhahaha auðvitað endaði Magni með flest atkvæðin. Af hverju getum við ekki verið eins dugleg að mótmæla, já ég veit ekki, t.d. ójöfnuði í samfélaginu, hækkun bensínverðs o.s.frv. Djö værum við þá í góðum málum :D
Ronja litla reit um 01:16  
þriðjudagur, ágúst 29, 2006
Jiii er aftur kominn þriðjudagur...! :-O
Ronja litla reit um 08:55  
þriðjudagur, ágúst 22, 2006
Baulaðu nú Búkolla mín...

Hvaða dýr væruð þið ef þið væruð ekki manndýr?
Af ýmsum sem mér dettur í hug þá væri ég líklega krummi því ég er alltaf í svörtu og elska allt sem glitrar!

Þvoði þvott í vikunni sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema af því að þegar ég var búin að hengja hann á snúruna, snéri mér frá en sá snúruna út undan mér þá stafaði af henni geislum, sindrandi fallegum silfruðum og gylltum geislum.
Mér fannst það fallegt.
Ronja litla reit um 23:26  
fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Tja ta er madur buinn ad profa ad vera a flugvelli tegar ahaetta a hrydjuverkum er i hamarki! Ekki tad ad tad vaeru miklar upplysingar gefnar a Stansted um astand mala heldur komu taer i gegnum simann ad heiman! Anyways ta er allt gott nuna (sja lysandi mynd af treyttum tasum). Edinborgarhluti ferdalagsins strokadur ut og London beibi filingur tar til a tridjudag... ef vid komumst ta heim ;-) tata...
Ronja litla reit um 17:32  
mánudagur, ágúst 07, 2006


Þetta er alveg brill, áhrif Dýra/Animal liggja víða eins og sjá má ef maður rekst á spjall/blogg/upplýsingar um trommara sem eru nógu ungir til að hafa séð þessa snilld í sjónvarpinu á sínum tíma.

Buddy Rich heitinn er náttúrulega alls ekki síðri ;)
Ronja litla reit um 16:54  
fimmtudagur, ágúst 03, 2006
úfff púfff best að skrifa eitthvað til að bjarga sjálfri mér og öðrum undan smettinu á Herra Hoff...

hvernig er það, ætlar einhver að djamma í bænum um helgina?
Ronja litla reit um 15:49  
föstudagur, júlí 21, 2006
New Music Video From David "The Hoff" Hasselhoff - "Jump In My Car"
Jiiiimundur..........

HAHAHAHAAHAHAHAHAHA
Ronja litla reit um 21:43  
Bara að láta vita að ég er á lífi. Leiseraðgerðin gekk vel, enn sem komið er sé ég betur á hægra en því vinstra, vona að það komist í betra lag ;) annars er ég bara mjög sátt með að hafa drifið mig í þetta. Er að komast frá þessum hugsunum sem poppuðu upp í kollinn á mér þegar óþægindin voru enn til staðar. Óþægindin voru í raun sama tilfinning og maður fær eftir að hafa sofnað með linsur, þegar maður verður þurr í augunum og finnur fyrir linsunum. Þá sá ég alltaf fyrir mér að ég ræki puttana upp í augun til að sækja "linsurnar"... jæks...

Enn í limbói með íbúðarkaup. Held ég fari í sumarfrí frá þeim pælingum í bili. Ljómandi annars að vera í fríi, get með sanni sagt að ég er búin að vera í fríi frá öllu saman, varla að ég nenni að drattast fram úr á morgnana/daginn... þar sem ég held síðan áfram að gera ekki neitt. Hef svo sem ekki getað farið út í sólbað með góða bók undanfarna daga eins og augljóst er hvurs vegna. Svo passa ég mig á því að reyna ekki of mikið á augun við tiltekt, rykið gæti farið illa með augun mín. Er samt búin að vera dugleg að glápa á vídjó (ekki spyrja...). Verst hvað mig langar á djammið. Held að það sé afar óskynsamlegt, ef það væri ekki reyksins vegna sem er á skemmtistöðum þá vegna farðaleysis - nokkrir dagar án maskara eða annars andlitsfarða eru mér ekki í hag, má víst ekki mála mig fyrr en seinnipart næstu viku.

Síðar...
Ronja litla reit um 18:10  
mánudagur, júlí 10, 2006
Jæja, ég verð að vera með...

*krossa putta*


...vonum að peningunum rigni niður af himnum!
Ronja litla reit um 16:48  
föstudagur, júní 30, 2006
ehemmm... ég vildi bara taka það fram, að gefnu tilefni, að ég er ekki eins bitur og pistillinn hér fyrir neðan hljómar. Eiginlega er ég bara ótrúlega kát og ekkert bitur, til dæmis út af því að nú þarf ég ekki lengur að rífast um hvort ég eigi að flytja í fámennið :D

og ef einhverjum langar að kaupa af mér miða þá vitið þið hvar er hægt að ná í mig ;)
Ronja litla reit um 18:38  
fimmtudagur, júní 29, 2006
Ég um mig frá mér til mín

Ég hefði átt að gera út á sjálfa mig í kosningunum í vor, Ronja, ein-stök í sinni röð. Opinberlega komin úr blessaðri kirkjunni, trúi bara á sjálfa mig. Bý ein, með sjálfri mér og held því áfram. Ræð öllu mínu lífi, sjálf. Tek ekki tillit til neins nema sjálfrar mín. Verst að ég hef þá engan nema sjálfa mig til að rífast við þegar ég er óákveðin, t.d. um íbúðarval ef ég kýs að fara í þá áttina (og ef lánadrottnar sýna mér góðvild). Eiginlega ætti ég að búa í hundraðogEINUM. Hundraðogsjö virkar of fjölmennt. Talandi um einstaklinginn sjálfa mig þá tókst mér að eignast tvo staka miða á Nick Cave. Þetta eru víst númeruð sæti í salnum. Ég er með eitt stakt sæti til sölu, ef einhver vill vera stakur með mér, einstaklingnum.

Kveðja
Ég
Ronja litla reit um 23:46  
föstudagur, júní 23, 2006
Hvernig er það, eru allir hættir að nenna að djamma?? ;) Eitthvað plan um helgina?
Ronja litla reit um 17:08  
þriðjudagur, júní 06, 2006

Jag er trött!


Álagið fyrir sumarfrí byrjað. Eeen maður lifir það náttúrulega af því það er svo gott að komast í frí... Bara rúmur mánuður, jei!
Ronja litla reit um 19:31  
Ég

Nafn: Ronja litla
Heima: Skóginum, Iceland
Um mig: Jarðbundinn skýjaglópur
sjá prófílinn minn
Fólk
Tilkynningar

Styttist í sumarfrí!!! Whoooppa!

Geymslan
Knúið af

Free Blogger Templates

BLOGGER