Rosalega góð aðferð sem hægt er að vinna á einum mánuði til að láta eina verktakaskattaskýrslu (tekur soldið lengri tíma en þessar ísípísívenjulegu) virka mjög lítið mál:
1. hafa extra mikið að gera í aðalvinnunni
2. hafa extra extra mikið að gera í aukavinnunni - sérstaklega í heimavinnuhlutanum
3. fá afhenta íbúð og þykjast sinna málun og öðru slíku
4. pakka búslóðinni að hluta
5. taka að sér hátt í tveggja tíma fyrirlestur- sem þarf að búa til nánast alveg frá grunni
6. hafa tímamörkin 25. mars því svo er ferðinni heitið erlendis á ráðstefnu
7. mæta á sem allra flesta mannfagnaði, meðal annars tvær árshátíðir og eitt stórafmæli
8. takmarka svefninn töluvert til að koma þessu öllu í verk
9. verða tvisvar sinnum lasin á þremur vikum - sem svo aftur eykur álagið af lið 1 - 6
NIÐURSTAÐAN:
í lok mánaðarins þegar lið 1 - 9 er lokið er ein skitin aumingjaleg verktakaskattaskýrsla eftir, svo lítið mál að það tekur því varla að gera hana. Best að fara á djammið bara!